Síðastliðna helgi var Fundur Fólksins haldinn í annað skipti í Norræna Húsinu. Þarna komu saman stofnanir, samtök, stjórnmálamenn og almenningur til að ræða hin ýmsu mál. Áhugamálum mínum samkvæmt einbeitti ég mér að umræðum um mál listamanna á Íslandi í dag. Fyrir mig sem einskonar nýbúa hér á landi var þetta kærkomið tækifæri til að kynna sér lista- og menningarmál á Íslandi á þennan einfalda hátt. Bandalag íslenskra listamanna stóð að öllum viðburðum varðandi þessi mál og eiga samtökin mikið lof skilið fyrir góðar og upplýsandi umræður!
Umræðurnar voru af ólíkum toga og komu meðal annars að sýnleika lista á Íslandi í dag og samspili við aðra þætti, t.d. varðandi ferðaþjónustu og fjölmiðla. Einnig var rætt um listamenn sem aðila vinnumarkaðarins, kassettugjaldið og aðrar leiðir til að listamenn fái greitt fyrir sín störf. Þá var talað um hvernig má lifa af listinni og komið inn á menningarstefnu stjórnmálaflokkanna sem hyggjast bjóða sig fram í komandi Alþingiskosningum.
Umræðurnar voru hvor annarri áhugaverðari og erfitt er að segja til um hvað mér fannst skemmtilegast eða áhrifamest. En allt kom þetta í raun að því hvernig er að hafa atvinnu af listsköpun á Íslandi í dag. Af öllu að dæma skipa menning og listir stóran sess í íslensku samfélagi en eins og fram kom í umræðum um “Samfélag á lista?” er erfitt að ímynda sér að fara í gegnum lífið án þess að upplifa menningu og listsköpun, bæði íslenska og erlenda. Hægt er að sjá upptökur frá einhverjum umræðum á Vísi.is, m.a. um Kassettugjaldið og Lifað af listinni.
Ég vona að stjórnvöld sjái að sér á næstu misserum og hlusti betur á það sem BÍL og önnur hagsmunasamtök listamanna hafa til málanna að leggja. Allir fulltrúar stjórnmálaflokkanna sem sóttu fundinn sögðust hafa áhuga á að sjá mál listamanna á Íslandi bætt en samræðurnar hafa engu að síður verið í gangi síðastliðin nokkur ár án þess að þeim fylgi breytingar.
Ég stefni á að hitta Kolbrúnu Halldórsdóttur, forseta BÍL, í næstu viku til að afla mér frekari upplýsinga um störf BÍL og fá hugmyndir um hvernig ég get lagt þessu mikilvæga málefni lið!
