Þrívíddarprentun er sjúklega spennandi fyrirbæri! Fyrir tveimur árum hefði ég líklega ekki litið tvisvar hefði ég rekist á frétt eða annað tengt tækninni en nú hef ég unnið í tengslum við hana í rúmlega eitt og hálft ár og þekki orðið ágætlega til!
Það var í september 2014 að ég rakst á auglýsingu frá 3D Printhuset, sem þá var vinna að opnun á sýningarsal og verslun með þrívíddarprentara og þjónustu í Kaupmannahöfn. Þeir voru að leita að starfsnemum í ýmis hlutverk og vegna samtals sem ég hafði átt við Pál bróður minn tveimur mánuðum áður ákvað ég að skella mér í að senda inn umsókn! Páll er (eða var að minnsta kosti) nefnilega alveg á því að þrívíddarprentun sé framtíðin og hafði verið að hvetja litlu systur til að kynna sér bransann. Ef ekki hefði verið fyrir þetta samtal hefði ég mögulega litið framhjá auglýsingunni og því orðið af þessu frábæra tækifæri.
Ekki leið á löngu frá því að umsóknin fór af stað þar til ég fékk símtal frá forstjóranum sem boðaði mig í viðtal viku seinna! Ég fékk giggið og 1. nóvember mætti ég ásamt fjórum öðrum nýráðnum starfnemum á Sølvtorvet í miðbæ Köben þar sem nýopnaðan sýningarsal 3D Printhuset var að finna. Þar sem ekkert okkar vissi neitt um þrívíddarprentun var okkar fyrsta verk að sitja kynningu frá einum af stjórnarmeðlimum um þróun tækninar fram að þessu og helstu vörur og þjónustu sem við myndum bjóða upp á. Hér að neðan er kynningarmyndand frá 3D Printhuset, að vísu á dönsku en það má sjá sýningarsalinn og fleira skemmtilegt.
Síðan þá hef ég lært ótal margt um þrívíddarprentun og þá kannski helst hvað þróunin er gríðarlega hröð! Þrívíddarprentun er ekki eins ný af nálinni og margir gætu haldið en tæknin var fyrst þróuð í upphafi 8. áratugarins. Einkaleyfin sem þá voru veitt runnu hinsvegar mörg út í kringum 2013 og 2014 og þá fyrst fór boltinn almennilega að rúlla! Á þessum 2-3 árum sem liðin eru hafa framboð, gæði, verð og aðgengi að tækninni þotið áfram og í dag er hægt að kaupa tiltölulega góða og notendavæna þrívíddaprentara á um 60 þúsund krónur (da Vinci JR. 1.0 á DKK 3.195)! Svo eru minni og enn aðgengilegri vörur eins og þrívíddarpenninn 3Doodler einnig í boði fyrir þá sem hafa áhuga á að föndra eða jafnvel búa til skartgripi eða minni prótótípur með höndunum.
Hér er frekar sætt myndband sem sýnir hversu auðvelt það er að nota da Vinci Jr. þrívíddarprentarann.
Og annað sem sýnir hvað er hægt að gera með 3Doodler þrívíddarpennanum.
Stuttu eftir opnun 3D Printhuset varð að veruleika stofnun systurfyrirtækisins 3D Print Scandinavia sem er dreifingaraðili á þrívíddarprenturum og aukahlutum í gjörvallri Skandinavíu. Starf mitt sem starfsnemi og síðar ‘studentermedhjælper’fól í sér vinnu bæði fyrir 3D Printhuset við blogg og almenn skrifstofustörf og fyrir 3D Print Scandinavia við uppsetningu og viðhald heimasíðu, reikningagerð og viðhald á ýmsum gagnagrunnum. Þegar ég svo flutti aftur til Kaupmannahafnar eftir dvölina í Mílanó og Cambridge var ég búin að semja við forstjórann að fá að hefja aftur störf hjá þeim, í þetta skiptir eingöngu hjá 3D Print Scandinavia. Því má segja að ég hafi fengið að fylgjast með útbreiðslu tækninnar á Norðurlöndum alveg frá upphafi og ég hef séð markaðinn þróast hratt og mikið.
Ég hef lært ótrúlega mikið af störfum mínum hjá 3D Printhuset og 3D Print Scandinavia. Auðvitað hef ég lært sitthvað um tæknina sjálfa, þróun hennar síðustu ár og þróun markaðarins á Norðurlöndum. En þar að auki er starfsnámið og hlutastarfið hjá frumkvöðlafyrirtæki af þessu kaliberi einnig ómetanlegt þegar kemur að reynslunni sem ég hef fengið og verkefnunum sem ég hef unnið að. Til að mynda voru mín fyrstu verk sem starfsnemi að blogga um þrívíddarprentun á dönsku. Ég þekkti ekki tæknina og danskan var ekki svo góð að ég gæti skrifað langa texta án mikillar fyrirhafnar. Þó tókst mér með hjálp Google og góðra samstarfsmanna að skrifa um málefni eins og möguleikana við þrívíddarprentun í grunnskólum, möguleika og ógn þrívíddarprentunar fyrir hugverkaréttindi og notkun plastefnis við prentun á t.d. leikföngum og mataráhöldum. Auk dönsku og frekari þekkingar á tækninni, lærði ég við þetta mikið um textagerð, framsetningu efnis á netinu og notkun á WordPress.
Eftir að 3D Print Scandinavia (3DPS) var stofnað fékk ég svo það hlutverk að setja upp heimasíðuna þeirra í samstarfi við samstarfsmann minn. Þá lærði ég auðvitað mjög mikið um notkun WordPress en einnig margt um textagerð og vörulýsingar, bæði fyrir B2B og B2C viðskipti. Svo þegar 3DPS hóf starfsemi voru mér falin hlutverk á borð við reikningagerð, viðhald gangagrunna og fleira. Við það lærði ég að reikna verð, framlegð og virðisaukaskatt og eins kann ég nú á netbókhaldsforritið E-conomic. Svo hef ég öðlast reynslu af samskiptum við birgja og endursöluaðila og kann orðið vel að halda mörgum verkefnum gangandi á sama tíma.
Ég er ótrúlega þakklátt fyrir tækifærin hjá 3DPH og 3DPS og fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt í starfi. Það vill líka svo vel til að þakklætið er gagnkvæmt og ég get fullyrt að starf mitt hjá 3D Printhuset og 3D Print Scandinavia er mikils metið. Við samtal okkar um síðustu vikurnar mínar hjá 3DPS nefndi yfirmaðurinn minn að eiginleikar á borð við sjálfstæð vinnubrögð, skil verkefna af háum gæðum og á umsömdum tímum, sem og óvandlæti við val á verkefnum hefði gert mig að mjög góðum starfskrafti sem er auðvelt og ánægjulegt væri að vinna með.
Þar sem stefnan er tekin á Ísland eftir útskrift mun ég vinna minn síðasta vinnudag hjá 3D Print Scandinavia í næstu viku. Það verður óneitanlega svolítið erfitt að kveðja 3D Printhuset og allt frábæra fólkið sem vinnur þar en ég mun þó án efa fylgjast með gangi mála hjá þeim sem og þróun markaðarins á Íslandi!
