Erla Rún heiti ég og er Guðmundsdóttir. Ég starfa sem sérfræðingur í hagskýrslugerð um menningu og skapandi greinar á Hagstofu Íslands. Ég hóf störf á Hagstofunni í janúar 2019 og hef síðan sinnt ýmsum verkefnum tengdum þróun, umbótum og framleiðslu á menningarhagtölum. Ber þar kannski helst að nefna menningarvísana svokölluðu, sem ég átti stóran þátt í að koma í loftið. Ég hef gríðarlegan áhuga á menningu og skapandi greinum og er einmitt menntuð á því sviði.
Ég á tvær stúlkur fæddar 2020 og 2022 og bý með þeim og unnusta mínum á höfuðborgarsvæðinu. Í frítíma mínum starfa ég með Flugbjörgunarsveitinni Reykjavík og hef gert síðan 2017. Ég er nú varaformaður félagsins og sinni því ýmsum verkefnum fyrir hönd sveitarinnar og félaga hennar, auk þess sem ég sit í skólaráði Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og er á útkallsskrá félagsins.
Frá 17 ára aldri og fram til 27 ára fór ég á flakk um heiminn. Flakkið hófst á skiptinemaári í Guayaquil í Ecuador, þar sem ég dvaldi hjá ekvadorskri fjölskyldu og fór í ekvadorskan skóla. Skiptinemaárið var svo kveikjan að frekari ævintýraþrá og því leið ekki á löngu þar til ég flutti aftur til útlanda. Eftir útskrift úr Verzlunarskólanum fór ég þó bara til næsta bæjar, Kaupmannahafnar, þar sem ég bjó að mestu leyti næstu fimm árin. Ég hóf grunnnám í viðskiptum, tungumálum og menningu við CBS haustið 2011 og fór svo í skiptinám til Valencia á Spáni vorið 2013. Grunnnáminu lauk ég vorið 2014 og eftir það fór ég beint í framhaldsnám í stjórnun á skapandi verkferlum, einnig við CBS.
Ég komst svo að í svokölluðu „tvöföldu meistaranámi“ og vegna þessa lá leiðin til Mílanó haustið 2015. Þar fór ég í framhaldsnám í stjórnun og fjármálum fyrir listir, menningu, margmiðlun og afþreyingu við Bocconi háskólann og lauk svo báðum meistaragráðum sumarið 2016 með rannsóknarverkefni um áhrif endurtekins samstarfs tveggja aðila á sköpunarkraft. Áður en að útskrift kom fór ég þó í starfsnám hjá umboðsskrifstofu klassískra tónlistarmanna til Cambridge í Englandi og dvaldi þar í um þrjá mánuði.
Eftir úrskrift lá leiðin heim til Íslands og í september 2016 hóf ég störf sem blaðamaður hjá Árvakri. Ég lét af þeim störfum eftir hálft ár og tók við sem verkefnastjóri hjá Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík – RIFF. Þá starfaði ég sem rannsakandi á vegum Rannsóknarmiðstöðvar skapandi greina, að verkefni um hagtölur íslenska tónlistariðnaðarins, sem m.a. var styrkt af Samtóni og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.
Ég er opin fyrir ýmsum verkefnum, hvort sem þau eru tímabundin, hlutastörf eða full störf til framtíðar. Endilega hafið samband ef eitthvað vekur áhuga eða þið viljið vita meira.
Netfang: erg@erlarun.com