Annað

Meðfram námi og störfum hef ég einnig tekið að mér ýmis sjálfboðaliðastörf og unnið að verkefnum á eigin tíma. Hér að neðan má sjá það helsta, birt í tímaröð með það nýjasta fyrst.

13962727_10153662486377027_3037572830962729873_n

Ekki með neitt á þjóðvegi eitt

Ekki með neitt á þjóðvegi eitt er heimildamynd eftir Bjarka Sigurjónsson. Bjarki er maðurinn á bak við hugmyndavinnu, handrit, leikstjórn, framleiðslu og klippingu en aðrir hafa einnig komið að gerð hennar, m.a. við kvikmyndatöku, tónlist og dreifingu. Ég gekk til liðs við teymið þegar eftirvinnslu var um það bil lokið og hef ég því mest komið að dreifingar- og markaðsmálum, t.a.m í sambandi við umsóknir á kvikmyndahátíðir. Einnig sá ég um þýðingu á myndinni yfir á ensku. Ekki með neitt á þjóðvegi eitt var frumsýnd á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg í maí 2016.

Upp

Roskilde Festival

Í júní/júlí 2016 var ég sjálfboðaliði á Roskilde Festival þar sem ég sá ásamt fjölmörgum öðrum um öryggismál við stærsta sviðið, Orange Stage. Fyrir hátíðina sótti ég námskeið um öryggismál á tónleikum eða öðrum stöðum þar sem mikill fjöldi fólks kemur saman.

CBP Program Quality Board Member, CBS

Sem meðlimur í gæðaráði meistaraprógramsins í CBS var ég milligönguaðili milli kennara og stjórnar annars vegar og nemenda hins vegar. Þá safnaði ég upplýsingar um það sem betur mátti fara samkvæmt nemendum og sótti fundi með kennurum þar sem þeim upplýsingum var komið til skila og hugmyndir settar fram um hvernig mætti betrumbæta.

180 Degrees Consulting

Sem nemendaráðgjafi (student consultant) hjá 180 Degrees Consulting var ég sett í fimm manna teymi sem fékk það hlutverk að veita raftónlistarhátíðinni Strøm í Kaupmannahöfn markaðsráðgjöf. Við settum því saman allsherjar markaðsáætlun í samstarfi við hátíðina, þar sem bæði bein og óbein markaðssetning kom fram, jafnt á netinu sem og annarsstaðar.

Wundergrund Festival

Ég hef tvisvar verið sjálfboðaliði á Wundergrund Festival í Kaupmannahöfn. Hátíðin sýnir nýja tilraunatónlist sem og nýjungar sem blanda hljóðlist við annarskonar listir. Hátíðin hefur nú fengið nýtt nafn, G((o))ng Tomorrow.

Upp