Menntun

Síðustu fimm ár hef ég verið í háskólanámi erlendis, að mestu í Kaupmannahöfn en þó með hléum. Vorið 2013 fór ég í skiptinám til Valencia á Spáni og veturinn 2015-2016 var ég við nám í Mílanó á Ítalíu. Hér að neðan má lesa um helstu verkefni sem ég hef unnið að í gegnum háskólanám.

3020143-05

 

 

bocconi

MSc Management and Economics in Arts, Culture, Media and Entertainment

„The Power of Two: An Empirical Study of Repeated Collaboration and Dyadic Creativity”

3020143-06

„The Power of Two er titillinn á meistaraverkefninu mínu sem ég vann að frá janúar til júní 2016. Verkefnið byggir á rannsókn sem ég gerði á því hvernig endurtekið samstarf milli tveggja einstaklinga hefur áhrif á sköpunargleði beggja aðila og útkomu þeirrar sköpunar. Rannsóknin samanstóð af tölfræðilegum upplýsingum um samstarf milli kvikmyndaleikstjóra og -tónskáld í rúmlega þúsund kvikmyndum og um kvikmyndaverðlaun  í þremur flokkum (leikstjórn, kvikmyndatónlist og besta mynd). Niðurstöðurnar gáfu til kynna að endurtekið samstarf milli tveggja einstaklinga hefur jákvæð áhrif á gæði og útkomu sköpunar beggja aðila. Ég hlaut fyrir verkefnið fyrstu einkunn (8/8) frá dómnefnd sem samanstóð af 10 kennurum og prófessorum við Bocconi háskólann í Mílanó. Áætlað er að halda rannsókninni áfram á komandi mánuðum.

Upp

EVENT MANAGEMENT: „The Awakening of Architecture: In the shoes of Carlo Scarpa”

Áætlanagerð og stefnumótun fyrir sérstakan viðburð í Villa dei Vescovi byggingunni á Ítalíu. Verkefnið var unnið sem hluti af 12309968_10153305032713693_1513271129068950519_onámskeiði í ‘Viðburða- og stórviðburða-stjórnun’ vegna samstarfs milli Bocconi og Fondo Ambiente Italiano, samtaka sem vinna að varðveislu og uppbyggingu á sögulegum byggingum og kennileitum á Ítalíu. Um hópaverkefni var að ræða og með mér í hóp voru sex aðrir nemendur, frá Ítalíu, Svíþjóð, Ástralíu og Búlgaríu. Verkefnið samanstóð af því að koma með hugmynd að viðburði sem myndi tengjast byggingunni og svæðinu að einhverju leyti og þróa viðburð út frá hugmyndinni. Þar á meðal var gerð krafa um fjárhags- og markaðsáætlun, sem og nákvæmar hugmyndir um dagskrá og annað. Verkefnið hlaut 29 af 30 mögulegum.

Upp

MOVIE INDUSTRY

Sem hluti af námskeiði um kvikmyndaiðnaðinn vann ég tvö hópaverkefni með þremur Frökkum og einum Ítala. Í fyrra verkefninu var okkur gert að velja kvikmyndaiðnað í hvaða landi sem er og kanna þar markaðseinkenni og aðstæður til kvikmyndagerðar, t.a.m. í tengslum við fjármögnun og dreifingu. Við unnum verkefnið út frá franska kvikmyndaiðnaðinum og fengum fyrir það 30 af 30 mögulegum. Seinna verkefnið snerist um að velja framleiðslufyrirtæki og skrifa um sögu og einkenni viðkomandi fyrirtækis, til dæmis varðandi samstarf við skapandi vinnuafl eða önnur fyrirtæki, stefnumótun og þróun. Breska framleiðslufyrirtækið Working Title Films varð fyrir okkar vali og fengum við 27 af 30 mögulegum fyrir verkefnið.


Upp


cbs

MSocSc Management of Creative Business Processes

„An Explorative Study on Online Learning as a Business Model”

Verkefnið var lokaverkefni á fyrsta ári í meistaranáminu, þar sem ætlast var til að þekking og kunnátta frá fyrri námskeiðum kæmist áleiðis í greiningu og umræðu um fyrirtæki sem vinnur með skapandi verkferla. Verkefnið var unnið út frá trúnaðargögnum svo um það má einungis deila takmörkuðum upplýsingum. Sem hópur af fjórum nemendum unnum við í samstarfi við danskt fyrirtæki sem veitir þjónustu og menntun í gerð á sérstökum úrvals matar- og drykkjarvörum. Við skoðuðum þrjú önnur fyrirtæki á sama sviði og bárum saman viðskiptamódel og netnámsforrit eða -uppbyggingu allra fyrirtækja með kosti og galla hvers í huga. Niðurstöðurnar sýndu að þegar um þessa tegund af vöru er að ræða þarf meiri verklega kennslu þegar nemendur ná lengra í faginu en möguleikar eru fyrir hendi til að miðla grunnupplýsingum gegnum netkennslu. Ég hlaut fyrir verkefnið næst hæstu einkunn (10).

Upp

BSc Business, Language and Culture

„Public Service Television for the Littlest Audience”

Lokaverkefni mitt í grunnnáminu fjallaði um ríkisrekna sjónvarps-, útvarps- og vefmiðla (enska: public service broadcasters) og hlutverkið sem þeir spila í framleiðslu á efni fyrir börn á leikskólaaldri. Þó markaðurinn sé lítill að stærð er hann ábatasamur og mikilvægur hluti af framleiðslu einkarekinna stórfyrirtækja á borð við Disney og Nickelodeon. Markaðurinn einkennist einmitt af fáum alþjóðlegum stórfyrirtækjum en ríkismiðlar líta engu að síður á hann sem mikilvægan hluta af sínum störfum. Þetta á sérstaklega við um Norðurlöndin, þar sem ríkisreknu miðlarnir einbeita sér að framleiðslu á raunhæfu efni sem endurspeglar veruleika barnanna á meðan að alþjóðleg stórfyrirtæki framleiða oft efni sem ekki er byggt á menningu einstakra landa og er frekar er ætlað að skemmta börnum en kenna þeim á umheiminn. Við hlutum fyrir verkefnið hæstu einkunn (12).

Upp

unival

Alþjóðamarkaðsfræði: Innkoma fyrirtækja á erlendum mörkuðum

Fyrir þetta verkefni var okkur gert fyrst að velja fyrirtæki hvaðan sem er úr heiminum og svo að velja markað þar sem fyrirtækið var ekki starfrækt. Við unnum með frönsku skyndibitakeðjuna Quick og markaðssetningu þess á spænska markaðnum. Þá þurftum við að hafa í huga ýmsa vinkla sem skipta máli þegar fyrirtæki fer inn á nýjan markað, t.d. neyslumynstur, menningarlegar venjur og siði, fólksfjölda, tungumál og fleira. Verkefnið var sett upp sem markaðsgreining á spænskum markaði og skýrsla um það sem þyrfti að hafa í huga við innkomu Quick á spænskum markaði. Verkefnið hlaut ‘góða’ einkunn (‘Good’).

Upp