Meðfram háskólanámi hef ég unnið í hlutastörfum og verið í starfsnámi. Hér að neðan má sjá yfirlit yfir það helsta sem ég hef verið að gera í starfi síðustu tvö ár. Ég byrjaði reyndar að vinna löngu fyrr eða 14 ára gömul, en sú reynsla hefur minna með núverandi atvinnuleit að gera. Frá 14-24 vann ég mest við þjónustustörf á veitingastöðum og hóteli en einnig sem frístundaleiðbeinandi með grunnskólabörnum.
| 3D Printhuset | 3D Print Scandinavia | Bright Ivy Artist Management |

3D Printhuset
Í starfsnámi hjá 3D Printhuset tók ég þátt í eftirfarandi verkefnum:
- Blogg á dönsku um þrívíddarprentun og ýmislegt tengt því
- Þýðingar
- Milli ensku og dönsku
3D Print Scandinavia
Í störfum mínum hjá 3D Print Scandinavia tók ég þátt í eða sá um eftirfarandi verkefni:
- Uppsetning og viðhald á heimasíðu
- Skrif á auglýsingatextum á ensku, sem og textum um fyrirtækið sjálf og birgja
- Uppsetning á heimasíðu með WordPress netforritinu
- Þýðing á efni á heimasíðu yfir á íslensku
- Uppsetning og viðhald á gagnagrunnum
- Uppsetning og viðhald á skjalasafni fyrir endursöluaðila
- Markaðs- og kynningarstörf
- Gerð á kynningum fyrir forstjóra (PowerPoint)
- Fréttabréf fyrir endursöluaðila (MailChimp)
- Samskipti við birgja
- Reikningagerð
- E-conomic bókhaldsforrit
- Verðreikningar
Brigth Ivy Artist Management
Í starfsnámi hjá Bright Ivy tók ég þátt í eftirfarandi verkefnum:
- Viðhald á gagnagrunnum
- Fréttaskrif
- Verkefnavinna fyrir tónlistarmenn